Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Bragi Þór Hinriksson leikstjóri hafa sett íbúð sína í Drápuhlíð á sölu.
Íbúðin er 114 fm í fjöleignarhúsi sem byggt var 1953.
Íbúðin samanstendur af stofu, fjórum svefnherbergjum, eldhúsi og baði.
„Þar sem ævintýrið byrjaði,“ skrifar Helga í færslu á Facebook. „Fyrsta heimilið okkar Braga þar sem tvær sjónvarpsseríur af Lifum lengur urðu til, á annan tug hlaðvarpa fór í loftið, barnabókin Nína Óskastjarna var skrifuð, kvikmyndahandritið af Birtu, myndinni okkar var skrifað og varð að mynd undir leikstjórn Braga og síðast en ekki síst þar sem Jakob Örn augasteinninn okkar kom í heiminn. Þetta má alveg kalla góð afköst, en fyrst og fremst höfum við átt yndislegt heimili í góðu hverfi sem hefur haldið vel utan um fjölskylduna og látið okkur líða vel í allri þessari sköpunarvinnu. Megi ævintýrin halda áfram á öðrum stað og yndisleg fjölskylda taka við keflinu í Drápuhlíðinni.“
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.